Fyrir fjölmiðla
Hér eru helstu upplýsingar um GGFÍ og merki til að nota í umfjöllun. Við aðstoðum fjölmiðla með upplýsingar um félagið, Gagnaglímuna og þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu.
GGFÍ í stuttu máli
Stutt kynning til notkunar í umfjöllun um félagið.
Gagnaglímufélag Íslands (GGFÍ) stendur fyrir Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunni, og heldur utan um þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu (European Cybersecurity Challenge, ECSC). Félagið sinnir undirbúningi og þjálfun keppnishópsins og vinnur að því að efla þekkingu og færni á sviði netöryggis á Íslandi. Gagnaglímufélag Íslands var stofnað árið 2021.
Merki til niðurhals
Sækja öll merki (ZIP)Veldu SVG fyrir stækkanlegt merki eða PNG með gagnsæjum bakgrunni.
Gagnaglímufélag Íslands
Merki félagsins sem stendur að keppninni og þjálfun keppnishóps Íslands.
Notaðu merkin í upprunalegum litum og haltu hlutföllum þeirra. Ef þig vantar annað efni geturðu haft samband við okkur.