Um félagið
Gagnaglímufélag Íslands eflir þekkingu og færni á sviði netöryggis á Íslandi. Félagið heldur utan um þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu, European Cybersecurity Challenge (ECSC).
Félagið sér um framkvæmd Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, sem notuð er til að velja keppnishóp Íslands fyrir ECSC.
GGFÍ sinnir einnig þjálfun keppnishópsins og stendur fyrir öðrum viðburðum tengdum netöryggi sem samrýmast markmiðum félagsins.
- Stofnað
- 14. september 2021
- Óformlegt starf frá
- 2020
- Kennitala
- 661021-2170
Stjórn félagsins
2026-
formaður
Hjalti Magnússon
-
gjaldkeri
Níels Ingi Jónasson
-
varamaður
Heiðar Karl Ragnarsson
Stjórnin var kosin á aðalfundi GGFÍ þann 22. janúar 2026.
Merki félagsins
Merki Gagnaglímufélags Íslands sækir innblástur til galdrastafsins gapaldurs.
Gapaldur var annar tveggja galdrastafa sem notaðir voru við glímugaldur. Glímukappar rituðu stafinn á blað eða ristu á spón og lögðu undir hæl hægri fótar. Galdurinn átti þá að tryggja glímukappanum sigur undir ákveðnum kringumstæðum.