Samstarf 2027

Styðja starfið

Með stuðningi við Gagnaglímufélag Íslands leggur þú þitt af mörkum til að efla netöryggisþekkingu og skapa ungu fólki tækifæri til að þjálfa sig og keppa fyrir Íslands hönd.

Við leitum að fyrirtækjum og einstaklingum sem vilja leggja starfinu lið á komandi ári.

Stuðningur sem skapar tækifæri

Framlög til félagsins styðja við starfið sem við sinnum allt árið.

Þjálfun og þekking

Styðja við undirbúning keppnishópsins og uppbyggingu hagnýtrar færni í netöryggi.

Keppnir og viðburðir

Leggja lið við framkvæmd Gagnaglímunnar og annarra viðburða á vegum félagsins.

Þátttaka Íslands

Styðja við þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu og undirbúning liðsins.

Hafðu samband til að ræða samstarf fyrir 2027, nýtingu framlags og kynningu á stuðningi fyrirtækisins.

Frjáls framlög

Fyrirtæki og einstaklingar geta styrkt félagið með millifærslu.

Viðtakandi
Gagnaglímufélag Íslands
Kennitala
661021-2170
Bankareikningur
0133-15-006900

Ef þú vilt ræða framlag eða fá nánari upplýsingar geturðu sent okkur línu á ggfi@ggfi.is. Takk fyrir stuðninginn!