Fréttir
Fréttir af Gagnaglímunni, keppnishópi Íslands og öðru starfi Gagnaglímufélags Íslands. Hér má fylgjast með keppnum, undirbúningi og þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu.
Gagnaglímufélag Íslands vekur athygli á sænsku netöryggiskeppninni Säkerhets-SM og býður íslenskum ungmennum að taka þátt. Keppnin er ætluð nemendum á unglinga- og framhaldsskólastigi og byrjendur eru velkomnir.
Undankeppnin fer fram á netinu dagana 4.–6. desember. Keppa má í eins til þriggja manna liðum. Úrslitakeppnin verður haldin í Stokkhólmi dagana 18.–21. febrúar 2027.
Nánari upplýsingar og skráningu má finna á sakerhetssm.se.
Íslenska landsliðið tók þátt í Netöryggiskeppni Evrópu í Bochum í Þýskalandi dagana 12.–16. október. Ísland lauk keppni í 19. sæti af 42 liðum, með 4.001,50 stig.
Team Europe sigraði í International Cybersecurity Challenge, ICC, sem fram fór í Brisbane í Ástralíu. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð.
ICC safnar saman ungum netöryggiskeppendum víðs vegar að úr heiminum. Gagnaglímufélag Íslands fagnar árangri evrópska liðsins og óskar keppendum og þjálfurum til hamingju!
Nánar má lesa um keppnina og úrslitin á vef ENISA.
Gagnaglímufélag Íslands hlaut styrk frá Eyvör til verkefnisins „Netöryggisáfangi fyrir framhaldsskóla“. Verkefnið miðar að því að efla netöryggisþekkingu framhaldsskólanema með hagnýtu námsefni.
Úthlutunin var kynnt 23. janúar, þegar 117 milljónum króna var úthlutað til fjórtán verkefna. Hjalti Magnússon er verkefnisstjóri fyrir hönd GGFÍ.
Við hlökkum til að vinna að því að gera fleiri ungmennum kleift að kynnast netöryggi og byggja upp hagnýta færni á því sviði.
Íslenska landsliðið tók þátt í Netöryggiskeppni Evrópu í Varsjá í Póllandi dagana 6.–9. október. Ísland lauk keppni í 20. sæti af 34 þjóðum, með 2.401 stig.
Ungt fólk á aldrinum 15–24 ára á Íslandi getur tekið þátt í Telia Cybercation Challenge, norrænni og baltneskri netöryggiskeppni. Keppendur mynda þriggja til fimm manna lið og leysa verkefni í öruggu og siðferðilegu umhverfi.
Undankeppnin fer fram á netinu 29. ágúst og lokakeppnin verður í Helsinki 4. nóvember. Skráningarfrestur liða er 26. ágúst. Ferðastuðningur er í boði fyrir efstu lið frá þátttökulöndum.
Nánari upplýsingar um keppnina og skráningu má finna á keppnisvefnum.
Fulltrúar Gagnaglímufélags Íslands komu saman með fulltrúum annarra þátttökulanda á Main Planning Conference, MPC, í Varsjá dagana 10.–12. júní til að undirbúa Netöryggiskeppni Evrópu.
Varsjá verður gestgjafi ECSC dagana 6.–9. október. Fundurinn er hluti af alþjóðlegu samstarfi sem þarf til að halda keppni þar sem ungmenni frá mörgum löndum takast á við krefjandi verkefni í netöryggi.
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 24. maí, frá kl. 9:30 til 15:30. Sautján keppendur tóku þátt, fimm í yngri flokki og tólf í eldri flokki.
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, verður haldin í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 24. maí, frá kl. 9:30 til 15:30.
Þeim sem hafa náð 1.000 stigum í Hakkaraskólanum verður boðið að taka þátt, auk þeirra sem hafa áður unnið sér inn þátttökurétt í landskeppninni.
Í keppninni fást þátttakendur við fjölbreyttar netöryggisþrautir í CTF-formi og safna stigum fyrir leyst verkefni. Árangur í landskeppninni er grundvöllur að vali á keppnishópi Íslands fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, ECSC, sem haldin verður í Varsjá í Póllandi í október.
Við hvetjum alla áhugasama til að nýta Hakkaraskólann til æfinga og hlökkum til að sjá keppendur í landskeppninni. Nánari upplýsingar um Gagnaglímuna má finna á gagnagliman.is.
Undirbúningur fyrir Netöryggiskeppni Evrópu hélt áfram á skipulagsfundi dagana 10. og 11. apríl. ECSC 2025 verður haldin í Varsjá í Póllandi í október.
Fulltrúar þátttökulandanna samræma skipulag og undirbúning fyrir keppnina. Íslenska landsliðið verður valið í kjölfar Gagnaglímunnar og fær frekari þjálfun fyrir keppnina.
Hakkaraskólinn býður upp á opnar æfingar í netöryggi fyrir þau sem vilja læra með því að leysa verkefni. Vettvangurinn er byrjendavænn og nýtist þátttakendum sem stefna á landskeppni Gagnaglímunnar.
Þeir sem ná tilteknum árangri á æfingavettvanginum geta fengið boð í landskeppnina. Þar gefst keppendum kostur á að sýna færni sína og vinna sér inn sæti í keppnishópi Íslands.
Æfingarnar eru á skoli.ggc.tf og við hvetjum alla áhugasama til að prófa!
Verkefnið Örvangur hlaut styrk í fyrstu úthlutun netöryggisstyrkja Eyvarar. Örvangur er kennsluvettvangur sem á að auðvelda framkvæmd gagnaglímna og styðja verklega þjálfun í netöryggi.
Ambaga er styrkþegi verkefnisins og vinnur það í samstarfi við Gagnaglímufélag Íslands. Vettvangurinn verður opinn hugbúnaður og á jafnframt að styðja við þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu og þróun Hakkaraskóla Íslands.
Íslenska landsliðið tók þátt í Netöryggiskeppni Evrópu í Tórínó á Ítalíu dagana 8.–11. október. Ísland lauk keppni í 14. sæti af 31 landi, með 2.206,89 stig.
Liðið var valið eftir árangri keppenda í Gagnaglímunni og tók þátt í verkefnum sem reyndu á færni í fjölbreyttum greinum netöryggis. Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn og þökkum þeim sem komu að undirbúningi liðsins.
Heildarstigatöflu má sjá á vef ECSC.
Ungmenni á aldrinum 14–25 ára frá Íslandi geta tekið þátt í undankeppni Telia Cyber Battle of Nordic-Baltics. Keppendur mynda þriggja til fimm manna lið og leysa netöryggisverkefni á netinu.
Undankeppnin fer fram 20. september og úrvalslið frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum keppa til úrslita í Tartu í Eistlandi 1. nóvember. Keppnin er ætluð til að efla færni ungs fólks í netöryggi með verklegum og siðferðilegum verkefnum.
Nánari upplýsingar má finna á keppnisvefnum.
Fulltrúar Gagnaglímufélags Íslands tóku þátt í undirbúningsfundi ECSC í Tórínó á Ítalíu dagana 11. og 12. júní. Fundurinn var Main Planning Conference, MPC, þar sem fulltrúar þátttökulandanna fóru yfir lokaundirbúning og aðstöðu fyrir keppnina.
Netöryggiskeppni Evrópu fer fram í sömu borg dagana 8.–11. október. Ísland verður meðal landsliðanna sem taka þátt í haust og heldur undirbúningur íslenska keppnishópsins áfram fram að keppni.
Gagnaglíman 2024 fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. maí. Sextán keppendur tóku þátt, þrír í yngri flokki og þrettán í eldri flokki.
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, verður haldin í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. maí, frá kl. 9:30 til 17:00.
Þeim sem hafa náð 1.000 stigum í Hakkaraskólanum verður boðið að taka þátt, auk þeirra sem hafa áður unnið sér inn þátttökurétt í landskeppninni.
Keppendur leysa fjölbreyttar netöryggisþrautir í hefðbundnu CTF-formi og safna stigum fyrir leyst verkefni. Frammistaða í landskeppninni verður lögð til grundvallar við val á keppnishópi Íslands fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, ECSC, sem fram fer í Tórínó á Ítalíu í október.
Við hvetjum alla áhugasama til að spreyta sig í Hakkaraskólanum og undirbúa sig fyrir landskeppnina. Nánari upplýsingar um Gagnaglímuna má finna á gagnagliman.is.
Gagnaglímufélag Íslands hefur opnað Hakkaraskólann, æfingavettvang fyrir þau sem vilja kynnast grunnatriðum netöryggis. Þar fást þátttakendur við gagnvirk verkefni sem reyna á skapandi hugsun og rökhugsun.
Hakkaraskólinn er opinn öllum og ekki þarf fyrri reynslu til að byrja. Þátttakendur 25 ára og yngri sem ná tilteknum stigafjölda geta unnið sér inn þátttökurétt í landskeppni Gagnaglímunnar.
Komdu og prófaðu á skoli.ggc.tf!
Undirbúningur fyrir Netöryggiskeppni Evrópu er hafinn. Dagana 14. og 15. mars var haldinn skipulagsfundur vegna ECSC 2024, sem haldin verður í Tórínó á Ítalíu í október.
Á undirbúningsfundum fara fulltrúar þátttökulanda yfir skipulag keppninnar og samræma framkvæmd hennar. Gagnaglímufélag Íslands vinnur að undirbúningi þátttöku Íslands og þjálfun keppnishópsins fyrir verkefnin sem bíða í haust.
Netöryggiskeppni Evrópu fór fram í Hamar í Noregi dagana 24.–27. október. Ísland tók þátt ásamt landsliðum frá öðrum Evrópulöndum og lauk keppni í 21. sæti af 28, með 8.836 stig.
Keppendur reyndu á færni sína í fjölbreyttum netöryggisverkefnum. Gagnaglímufélag Íslands sér um undirbúning og þjálfun íslenska keppnishópsins og þátttöku Íslands í keppninni.
Heildarstigatöflu má sjá á vef ECSC.
Fulltrúar Gagnaglímufélags Íslands tóku þátt í undirbúningsfundi fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, ECSC, í Hamar í Noregi dagana 20.–23. júní. Fundurinn er svokallaður Main Planning Conference, MPC, þar sem fulltrúar þátttökulanda fara yfir skipulag og framkvæmd keppninnar.
ECSC fer fram í Hamar dagana 24.–27. október. Íslenska liðið verður valið á grundvelli árangurs í Gagnaglímunni og undirbýr sig nú fyrir alþjóðlegu keppnina.
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, fór fram í Háskólanum í Reykjavík dagana 3. og 4. júní. Tuttugu keppendur tóku þátt, fimm í yngri flokki og fimmtán í eldri flokki.
Landskeppni Gagnaglímunnar verður haldin dagana 3. og 4. júní, frá 9 til 16, í Háskólanum Í Reykjavík í stofu M201. Opið verður fyrir heimsóknir á meðan keppninni stendur, og hvetjum við sem flesta að líta í heimsókn, en einnig verður hægt að fylgjast með framvindu keppninnar á https://finals.ggc.tf.
Niðurstöður keppninnar verða svo kynntar á verðlaunaafhendingu kl. 16:15, sunnudagin 4. júní, í stofu V102, og verður hún einnig opin öllum.
Forkeppni Gagnaglímunnar er hafin og mun standa yfir til miðnættis 30. apríl. Keppnin mun fara fram á https://ggc.tf og er búið að opna fyrir skráningu!
Við minnum á að keppnin er öllum opin og hvetjum alla til þátttöku.
Landskeppnin fór fram 25. maí samhliða UTmessunni. Alls tóku 18 þátt í keppninni og glímdu þau við 14 verkefni í 8 klukkustundir. Keppnin reyndist æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en undir blálokin.
Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér.
Jæja, þá er komið að því! Forkeppni Gagnaglímunnar fer í loftið stundvíslega kl. 20:00 11. mars og mun standa yfir til miðnættis 27. mars. Keppnin mun fara fram á https://ggc.tf og er búið að opna fyrir skráningu! Núna er bara að skrá sig og hita upp hakkið!
Forkeppni Gagnaglímunnar 2022 er handan við hornið, en hún hefst 11. mars. Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni, ungum sem öldnum, en aðeins þeir sem hafa keppnisrétt í ECSC geta unnið þáttökurétt í landskeppninni.
Núna er tækifærið til að frelsa sinn innri hakkara og skora á vinnufélagana, skólafélagana, vinina og fjölskylduna að gera slíkt hið sama.
Landskeppnin fór fram dagana 20. mars og 21. mars. Alls tóku 19 þátt í keppninni og glímdu þau við 24 verkefni í 36 klukkustundir. Keppnin reyndist æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en undir blálokin.
Upptaka af kynningu á niðurstöðum keppninnar má finna á Twitch síðu keppninnar og ítarlegri upplýsingar má nálgast hér.
Landskeppnin hefst á morgun, 20. mars kl. 08:00 og stendur yfir í 36 klst, eða til 21. mars kl. 20:00.
Hægt verður að fylgjast með stöðu keppninnar á finals.0xa.is. Athugið þó að stigataflan hættir að uppfærast á sunnudagseftirmiðdeginum, til að halda spennu undir lok keppninnar.
Úrslitin verða svo kynnt í beinni útsending á Twitch upp úr 20:00 á sunnudeginum. Öllum er frjálst að fylgjast með.
Forkeppninni lauk rétt fyrir miðnætt í gær. Við viljum þakka öllum sem tóku þátt.
Núna munum við fara yfir niðurstöður keppninnar og bjóða þeim sem hafa keppnisrétt að taka þátt í landskeppninni.
Niðurstöður keppninnar má finna á https://0xa.is/scoreboard.
Ertu forvitin(n) um hvernig raunverulegir öryggisgallar líta út? Langar þig að verða vitni að bankaráni?
Sparion er nýr banki sem ætlar að herja inn á íslenskan markað á næstunni. Bankinn hefur látið útbúa netbanka, en netbankinn var hannaður og smíðaður af hugbúnaðarfyrirtæki sem er ekki þekkt fyrir að setja öryggi í fyrsta sæti.
Starfsmenn Syndis ætla að gera úttekt á netbanka Sparion í beinni útsendingu og kynna um leið nokkra þekkta öryggisgalla sem hafa verið misnotaðir í raunverulegum netárásum.
Kynningin, sem er opin öllum, óháð tækniþekkingu, fer fram milli 13:00 og 14:00, laugardaginn 6. febrúar, og er hluti af tæknidegi UTmessunnar.
Skráðu þig á viðburðinn á Facebook svo þú missir örugglega ekki af ráninu!
Forkeppnin er hafin á 0xa.is og stendur yfir til 15. febrúar. Allir mega taka þátt, óháð aldri.
Keppnissíðan er komin í loftið á 0xa.is og þar er hægt að skrá sig, en keppnin hefst stundvíslega á miðnætti 1. febrúar (2021-02-01T00:00:00 GMT). Keppnin stendur yfir í 15 daga, eða fram til miðnættis 15. febrúar (2021-02-15T23:59:00 GMT)
Við ítrekum að forkeppnin er opin öllum, óháð aldri! Endilega heyrið í okkur, og hvort öðru, á Discord.
Nú styttist óðfluga í forkeppnina, en hún hefst 1. febrúar. Öllum er frjálst að spreyta sig á forkeppninni, óháð aldri og þjóðerni. Verkefnin eru af ýmsum toga og af öllum erfiðleikastigum, þannig allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Setjið keppnina í dagatalið og skráið ykkur á Facebook!
Forkeppnin er handan við hornið, en hún hefst 1. febrúar. Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni, ungum sem öldnum, en aðeins þeir sem hafa keppnisrétt í ECSC geta unnið þáttökurétt í landskeppninni.