Undirbúningur ECSC í Tórínó
Fulltrúar Gagnaglímufélags Íslands tóku þátt í undirbúningsfundi ECSC í Tórínó á Ítalíu dagana 11. og 12. júní. Fundurinn var Main Planning Conference, MPC, þar sem fulltrúar þátttökulandanna fóru yfir lokaundirbúning og aðstöðu fyrir keppnina.
Netöryggiskeppni Evrópu fer fram í sömu borg dagana 8.–11. október. Ísland verður meðal landsliðanna sem taka þátt í haust og heldur undirbúningur íslenska keppnishópsins áfram fram að keppni.