GGFÍ

Gagnaglímufélag Íslands

Gagnaglímufélag Íslands var stofnað með það að markmiði að efla netöryggisþekkingu íslenskra ungmenna. Félagið sér um þátttöku Íslands í Netöryggiskeppni Evrópu, European Cybersecurity Challenge (ECSC), ásamt undirbúningi og þjálfun keppnishópsins. Kepnishópurinn er valinn á grundvelli frammistöðu í Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunni, sem GGFÍ stendur fyrir og heldur árlega.

Fréttir úr starfi félagsins

Eldri fréttir

Gagnaglímufélag Íslands vekur athygli á sænsku netöryggiskeppninni Säkerhets-SM og býður íslenskum ungmennum að taka þátt. Keppnin er ætluð nemendum á unglinga- og framhaldsskólastigi og byrjendur eru velkomnir.

Undankeppnin fer fram á netinu dagana 4.–6. desember. Keppa má í eins til þriggja manna liðum. Úrslitakeppnin verður haldin í Stokkhólmi dagana 18.–21. febrúar 2027.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna á sakerhetssm.se.

Team Europe sigraði í International Cybersecurity Challenge, ICC, sem fram fór í Brisbane í Ástralíu. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð.

ICC safnar saman ungum netöryggiskeppendum víðs vegar að úr heiminum. Gagnaglímufélag Íslands fagnar árangri evrópska liðsins og óskar keppendum og þjálfurum til hamingju!

Nánar má lesa um keppnina og úrslitin á vef ENISA.