Ísland í 19. sæti í Netöryggiskeppni Evrópu
Íslenska landsliðið tók þátt í Netöryggiskeppni Evrópu í Bochum í Þýskalandi dagana 12.–16. október. Ísland lauk keppni í 19. sæti af 42 liðum, með 4.001,50 stig.
Eftir fyrsta dag hefðbundinnar gagnaglímu var Ísland í 20. sæti með 2.038 stig. Keppnin hélt áfram með CTF-Unplugged og gagnahríð, þar sem lið verja eigin þjónustur og reyna að finna veikleika hjá andstæðingum.
Sé miðað við höfðatölu og örþjóðir teknar út fyrir sviga er Ísland í fyrsta sæti. Það er auðvitað mælikvarði að okkar skapi!
Við óskum keppendum til hamingju og þökkum þeim sem stóðu að undirbúningi liðsins.
Lokastigatöflu má finna á vef keppninnar og samanburð miðað við höfðatölu á skorbor.lti.is.