Íslenskum ungmennum boðið í sænsku Säkerhets-SM
Gagnaglímufélag Íslands vekur athygli á sænsku netöryggiskeppninni Säkerhets-SM og býður íslenskum ungmennum að taka þátt. Keppnin er ætluð nemendum á unglinga- og framhaldsskólastigi og byrjendur eru velkomnir.
Undankeppnin fer fram á netinu dagana 4.–6. desember. Keppa má í eins til þriggja manna liðum. Úrslitakeppnin verður haldin í Stokkhólmi dagana 18.–21. febrúar 2027.
Nánari upplýsingar og skráningu má finna á sakerhetssm.se.