Gagnaglíman 2024 fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. maí. Sextán keppendur tóku þátt, þrír í yngri flokki og þrettán í eldri flokki.

Elvar Árni Bjarnason sigraði með 6.840 stig. Samúel Arnar Hafsteinsson varð annar með 4.836 stig og Kristinn Vikar Jónsson þriðji með 3.421 stig. Í fjórða og fimmta sæti voru Dagur Benjamínsson og Haraldur Jón Friðriksson.

Elvar hlaut einnig verðlaun fyrir bestu frammistöðu í staðbundnum verkefnum. Matthías Andri Hrafnkelsson var besti nýliðinn í yngri flokki og Haraldur Jón Friðriksson besti nýliðinn í eldri flokki.

Keppnin er jafnframt undankeppni fyrir íslenska landsliðið sem tekur þátt í Netöryggiskeppni Evrópu. Við óskum keppendum til hamingju og þökkum öllum sem lögðu hönd á plóg!

Nánari upplýsingar og niðurstöður má finna hér.