Ísland í 20. sæti í Netöryggiskeppni Evrópu
Íslenska landsliðið tók þátt í Netöryggiskeppni Evrópu í Varsjá í Póllandi dagana 6.–9. október. Ísland lauk keppni í 20. sæti af 34 þjóðum, með 2.401 stig.
Liðið varð í 22. sæti í hefðbundinni gagnaglímu og náði 14. sæti í gagnahríð, þar sem keppendur þurfa bæði að verja eigin kerfi og finna veikleika hjá öðrum. Sé árangurinn miðaður við höfðatölu er Ísland hins vegar í öðru sæti — mælikvarði sem við Íslendingar kunnum vel að meta!
GGFÍ þakkar keppendum og þjálfurum fyrir þeirra framlag og Aftra og Syndis fyrir stuðninginn við íslenska liðið.
Heildarstigatöflu má sjá á vef ECSC.