Landskeppni Gagnaglímunnar 2024
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, verður haldin í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 25. maí, frá kl. 9:30 til 17:00.
Þeim sem hafa náð 1.000 stigum í Hakkaraskólanum verður boðið að taka þátt, auk þeirra sem hafa áður unnið sér inn þátttökurétt í landskeppninni.
Keppendur leysa fjölbreyttar netöryggisþrautir í hefðbundnu CTF-formi og safna stigum fyrir leyst verkefni. Frammistaða í landskeppninni verður lögð til grundvallar við val á keppnishópi Íslands fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, ECSC, sem fram fer í Tórínó á Ítalíu í október.
Við hvetjum alla áhugasama til að spreyta sig í Hakkaraskólanum og undirbúa sig fyrir landskeppnina. Nánari upplýsingar um Gagnaglímuna má finna á gagnagliman.is.