Elvar Árni Bjarnason sigrar Gagnaglímuna
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, fór fram í Háskólanum í Reykjavík dagana 3. og 4. júní. Tuttugu keppendur tóku þátt, fimm í yngri flokki og fimmtán í eldri flokki.
Elvar Árni Bjarnason sigraði með 9.360 stig. Kristinn Vikar Jónsson varð annar með 6.520 stig og Dagur Benjamínsson þriðji með 5.960 stig. Í fjórða og fimmta sæti voru Samúel Arnar Hafsteinsson og Brynjar Örn Grétarsson.
Kristófer Helgi Antonsson var besti nýliðinn í yngri flokki og Axel Thor Aspelund í eldri flokki. Brynjar Örn Grétarsson og Elvar Árni Bjarnason hlutu verðlaun fyrir bestu frammistöðu í staðbundnum verkefnum. Björn Orri Guðmundsson, forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Syndis, afhenti verðlaunin.
Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn og þökkum öllum sem komu að keppninni!
Ítarlegar niðurstöður má finna hér.