Hakkaraskólinn undirbýr þátttakendur fyrir Gagnaglímuna
Hakkaraskólinn býður upp á opnar æfingar í netöryggi fyrir þau sem vilja læra með því að leysa verkefni. Vettvangurinn er byrjendavænn og nýtist þátttakendum sem stefna á landskeppni Gagnaglímunnar.
Þeir sem ná tilteknum árangri á æfingavettvanginum geta fengið boð í landskeppnina. Þar gefst keppendum kostur á að sýna færni sína og vinna sér inn sæti í keppnishópi Íslands.
Æfingarnar eru á skoli.ggc.tf og við hvetjum alla áhugasama til að prófa!