Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, fór fram í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 24. maí, frá kl. 9:30 til 15:30. Sautján keppendur tóku þátt, fimm í yngri flokki og tólf í eldri flokki.

Þeim sem höfðu náð 1.000 stigum í Hakkaraskólanum var boðið að taka þátt, auk þeirra sem höfðu áður unnið sér inn þátttökurétt.

Elvar Árni Bjarnason sigraði með 6.400 stig. Kristinn Vikar Jónsson varð annar með 5.347 stig og Dagur Benjamínsson þriðji með 4.843 stig. Samúel Arnar Hafsteinsson hlaut jafn mörg stig og varð fjórði samkvæmt skráningu keppninnar.

Pétur Alex Guðjónsson var besti nýliðinn í yngri flokki og Alexander Máni Einarsson í eldri flokki. Elvar Árni Bjarnason átti bestu frammistöðu í staðbundnum verkefnum. Verðlaunin afhentu Anton Egilsson, forstjóri Syndis, og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo.

Keppnin er jafnframt undankeppni fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, sem fram fer í Varsjá í október. Við óskum keppendum til hamingju með árangurinn!

Nánari upplýsingar og niðurstöður má finna hér.