Landskeppni Gagnaglímunnar 2025
Landskeppni Netöryggiskeppni Íslands, Gagnaglímunnar, verður haldin í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 24. maí, frá kl. 9:30 til 15:30.
Þeim sem hafa náð 1.000 stigum í Hakkaraskólanum verður boðið að taka þátt, auk þeirra sem hafa áður unnið sér inn þátttökurétt í landskeppninni.
Í keppninni fást þátttakendur við fjölbreyttar netöryggisþrautir í CTF-formi og safna stigum fyrir leyst verkefni. Árangur í landskeppninni er grundvöllur að vali á keppnishópi Íslands fyrir Netöryggiskeppni Evrópu, ECSC, sem haldin verður í Varsjá í Póllandi í október.
Við hvetjum alla áhugasama til að nýta Hakkaraskólann til æfinga og hlökkum til að sjá keppendur í landskeppninni. Nánari upplýsingar um Gagnaglímuna má finna á gagnagliman.is.